Barnamyndatökur
Best er að panta
tíma snemma dags eða á þeim tíma sem barnið er sem fjörugast td eftir hádegislúrinn.
Mikilvægt er að taka til fatnað til skiptana. Það kemur best út að hafa börnin á tásunum og hafa
fatnaðinn einfaldann og léttann t.d hlýrakjóla, gallabuxur og stuttermaskyrtur. Það verður heitt
í stúdíóinu þegar "leikurinn" byrjar, því er gott að vera léttklæddur. Látið hugmyndaflugið ráða,
gaman er að taka með uppáhaldsbangann, stígvél, gæludýrið eða eitthvað annað sem er barninu kært.
Það eru þó til allskonar aukahlutir í ljósmyndaverinu en oftast eru fallegustu myndirnar þar sem
barnið sjálft fær að njóta sín án aukahluta.
Fermingamyndatökur
Ráðlegt er að panta tíma í fermingamyndatöku
nokkrum vikum fyrir daginn sjálfan.
Oft panta stelpurnar tíma sama dag og þær fara í
prufugreiðslu en þá er hægt að taka myndir með
greiðsluna og án. Það er gaman að eiga hvoru
tveggja. Strákarnir panta þegar búið er
að kaupa fermingafötin eða eftir fermingardaginn.
Það er möguleiki að fá
albúmið afhent fyrir veisluna en þá þarf að
panta minnst 4 vikum fyrir fermingadaginn.
Endilega takið með fullt af fötum, sérstaklega
fermingafötin en einnig hversdagsleg föt. Það
getur líka verið gaman að taka gæludýrið, besta vininn,
hljóðfærið eða jafnvel tennispaðann með í
myndatökuna.
Stúdentamyndatökur
Stúdentarnir panta myndatöku sína á útskriftardaginn sjálfan eða einhvern
annan dag sem hentar. Oft er mikið stress á deginum sjálfum og þess vegna
kjósa margir að fara í myndatöku á öðrum degi. Það eykur
fjölbreytnina að taka með hversdagleg föt líka. Skemmtilegt getur
verið að hafa foreldra, maka og/eða besta vininn með á mynd!
Brúðarmyndatökur
Gott er að panta brúðarmyndatöku tímanlega. Að panta myndatöku með ársfyrirvara er algengt,
því það þarf aðeins ein brúðhjón sem ætla að gifta sig sama dag og sömu tímasetningu og þá
er sá tími upptekinn. Myndatakan fer fram eftir athöfnina en sum brúðhjón vilja koma í myndatökuna
fyrir athöfnina sjálfa. Þið hittið ljósmyndarann viku fyrir brúðkaupsdaginn og skoðið myndir,
albúm og leggið fram óskir
ykkar og fáið svör við spurningum. Það er mjög gott að hittast til að spjalla og kynnast örlítið.
Mánaðalegar myndatökur
Það er komið í bumbumyndatöku og svo mánaðalega eftir það með barnið. Hægt er að sleppa,
ólettumyndatökunni. Hvert skipti tekur ca hálftíma. Það eru teknar nokkrar myndir og ein mynd
í 13x18 cm er límd inn í fallegt innbundið albúm. Það er hægt að velja eina mynd eða fleiri úr
hverri myndatöku. Ef valdar eru fleiri en ein mynd úr myndatöku er greitt aukalega.
Passamyndatökur
Passamyndir eru afhentar strax og einnig er hægt að fá þær sendar
í
tölvupósti.