Ljósmyndaver Hörpu Hrundar ehf var stofnað í febrúar 2005 af Hörpu Hrund Njálsdóttur. Fyrirtækið er í húsnæði við Fákafeni 11, 108 Reykjavík. Fyrirtækið notar einungis hágæða stafræna myndavél og prentar út á hágæða ljósmyndapappír. Fyrirtækið tekur að sér allskyns myndatökur en sérstaða þess eru portretmyndatökur.

Harpa Hrund er fædd árið 1978. Hún lærði ljósmyndun í Lundi, Svíþjóð og síðar við Iðnskólann í Reykjavík. Á námstíma lærði Harpa Hrund verklegt nám hjá Barböru Birgis ljósmyndara í Ljósmyndaveri Skugganum. Harpa Hrund lauk sveinsprófi í filmu og stafrænni ljósmyndun haustið 2004.